Auglýsing

Klukkan

Party over here....

04. janúar 2010 klukkan 14:10
Sæl,

Daniel heiti ég og hafði hugsað mér að hafa partý heima hjá mér laugardaginn 9.jan fyrir alla verkfræðigangsterana. Ég á heima á Grettisgötu 69 (næstefsta bjallan).

Það væri gaman ef þið gætuð commentað og sagt hvað ykkur finnst

Kær kveðja
Daníel

Bústaðaferð Info

07. janúar 2009 klukkan 19:15
Jæja, þá er þetta allt að smella....
Einsog ég sagði áður þá fór ég og keypti borgara með öllu tilheyrandi, keypti líka eitthvað af gosi og snakki og svo smá miðnætursnarl ef hungrið fer að segja til sín.
Þetta er svona 50 min keyrsla. Það er frekar erfit að keyra framhjá þessu, beygið til vinstri rétt áður en þið komið að selfossi og keyrið svo bara þangað til að þið sjáið skillti á hægri hönd sem stendur á „Minniborgir.is" , um 500 metra eftir verslunina Borg. Kortin ættu að útskýra þetta.....(inná eventinum eða velnem07.bloggar.is)

Ps. Ef þið ætlið ekki að mæta í ratleikinn kl 2 látið vita svo það sé ekki beðið eftir ykkur

Good times....

mynd1

Tónleikar

15. desember 2008 klukkan 20:14
Sæl veriði,
Daniel heiti ég og er Auðunsson. Flest ykkar ættu að þekkja mig frá því að ég var með ykkur í bekk í verkfræði í dágóðan tíma. Í þann tíma sem ég var með ykkur í bekk var ég oft að tala um gítara og tónlist og oft á tíðum hugsaði ég ekki um neitt annað.
Upp á síðkastið hef ég verið að spila mikið með hljómsveit sem ég er í. Hún heitir Árstíðir.
Hægt er að hlusta á Árstíðir á:
www.myspace.com/dgrtrio
Þann 30.des næstkomandi ætlum við að halda glæsilega tónleika í Frikirkjunni þar sem við munum koma fram ásamt vini okkar Svavari Knúti (söngvarinn í Hraun). Ég vildi auðvitað láta ykkur vita þar sem þessir tónleikar gætu svarað þeirri efasemdaspurningu hvort ég ætli mér nokkurntímann að verða verkfræðingur.
Ef þið hafið áhuga þá fást miðar á midi.is
Væri gaman að sjá ykkur
Kveðja
Daníel

Bústaðaferð !!

06. desember 2008 klukkan 18:51
Sællt veri fólkið....

Ég er buinn að vera að vinna í þvi að leita að bústað fyrir þessa árlegu bústaðaferð okkar. Þetta hefur gengið frekar brösulega, þar sem ég hef verið að leita að stórum bústað fyrir okkur öll. En ég datt inná frekar nice place þar sem við erum að tala um svona mini-þorp www.minniborgir.is/husin/skogarthorpin.htm
Þetta er virkilega nice place og það myndast öruglega massa stemming. Það eru þrír í hverju húsi og svo samliggjandi pottar, svo er aðstaða að sal þar sem hægt er að borða og drekka saman (stóra húsið í miðjunni á yfirlitsmyndinni)..... eini gallinn við þetta er að þetta er soldið dýrt.... :)

Þetta eru 6500kall á mann en innifalið í því er: umbúin rúmum + baðhandklæði og þrif.

Þetta er laust 10 jan, þaeas dagsetningin sem mér fannst hennta best, ég er buinn að senda fyrirspurn um hvort verðið lækki eitthvað ef við tökum með okkur okkar eigin sængur/svefnpoka og er að bíða eftir svari.

Okkur stendur líka í boði að fá tilbúna grillveislu fyrir auka 3500kall á mann.

Væri mjög gott að fá feedback frá ykkur og ef þið getið reddað eitthverju betra þá Endilega láta vita sem fyrst...

kv Snæzi

Myndir

14. október 2008 klukkan 19:29

Komiði sæl

jæja.... mér fannst vera kominn smá tími á uppfærslu á þessari síðu okkar. En ég var að dunda mér í þvi að setja saman svona myndabók (einsog ég gerði fyrir útskriftarferðina okkar) af þessum dásamlegu árum okkar í Háskóla íslands.... ég var með eitthvern slatta af myndum bæði það sem ég hafði tekið og aðrir, og ég var að vellta þvi fyrir mér hvort að þið lumuðuð ekki á eitthverjum skemmtilegurm myndum frá þessum árum sem þið hefðuð áhuga á að deila með okkur hinum.... ég ætlaði svo að setja photobook skránna (mypublisher) inná netið þannig að þið gætuð sótt hann og breytt henni eftir ykkar höfði og tekið út og bætt inní osvfrv....

ps. þeir sem vita ekki hvað mypublisher er þá bendi ég þeim að fara inná www.mypublisher.com og kynna sér málið Smile

Þannig að ef þið eigið eitthverjar flottar myndir sem þið eruð til í að deila með okkur hinun þá megiði endilega senda mér þær á saea1@hi.is eða snaezi@iceh2.com

ps2. er að vinna í þvi að fá bústaðin á apavatni fyrir hinn árlega janúarhitting okkar... Wink

kv Snæzi

Taktu föstudaginn 25. júlí frá!

22. júlí 2008 klukkan 10:03
Ég (Benni) ætla að halda svaka afmælis-/innflutnings-/útfluttnings-/kveðju- partý niðrí bæ, Rofa-bæ, föstudaginn næsta (25.júlí). Ég vonast til þess að sjá sem allra flest ykkar niðrí bæ (Rofa-bæ 23, Ár-bæ). Síðasta alvöru partý sem ég hélt þarna endaði með inngripi lögreglu. Gerum okkar besta til þess að vera til vandræða og vera með almenn dólgslæti því brátt verðum við alltof gömul til þess!
Ég mun verða með einhverjar veigar í boði (og ef þær klárast þá er hverfispöbbinn, Blásteinn, í bakgarðinum. Við erum jú einusinni niðrí bæ, Ár-bæ).
Mig dauðlangar að sjá þig (og þinn/þína) og ef þú mætir tímanlega er aldrei að vita nema ég bjóði þér ekki bara uppá öl heldur grilli líka fyrir þig ljúffengar pylsur :)

Benni

(ég bið ykkur að afsaka að ég hafi ekki teiknað neitt kort með þessu, ég geri bara ráð fyrir að allir rati, þetta er jú niðrí bæ, Ár-bæ).

Tvíbba afmæli

10. júlí 2008 klukkan 00:02

Í tilefni af því að við systur eigum afmæli verður tryllt afmælispartý laugardagskvöldið þann 12. júlí í Geitlandi 4 um 9 leytið. Þeir sem muna hvernig þetta var í fyrra munu ekki láta sig vanta í þennan stórviðburð sumarsins. Eitthvað af veigum verður í boði.



Kveðja, Kristín og Guðríður

Brjálað innflutningspartý !!!!!

23. júní 2008 klukkan 21:46
Heil og sæl,

Laugardaginn næstkomandi 28 júni (beint eftir risatónleika Bjarkar og Sigur Rós í laugardalnum). Vona að þið sjáið ykkur öll fært að mæta! Það verður eitthvað fljótandi í boði en þessir síþyrstu ættu kannski að grípa með sér eitthvað.

Og svo enginn þurfi að týnast á leiðinni þá teiknaði ég upp þennan stórkostlega leiðarvísir.

Leiðarvísirinn

Hlakka til að sjá ykkur
kv, Árni Pétur


P.s. Bannað að dissa paint hæfileika mína!

Sumarbústaðferð/útilega

20. júní 2008 klukkan 10:50
Heil og sæl,

  helgina 25. - 27. júlí hef ég tekið frá bústað í Úthlíð sem rúmar c.a. 8-10 manns í svefnplássi. Sjá hér (Stórabunga).

Hugmyndin er að hópurinn hittist og njóti sveitasælunnar saman. Hægt er að fara í sund, golf  og gönguleiðir um svæðið eru margar. Látið við í athugasemdunum hvað þið hafið áhuga á og þá verður hægt að búa til smá prógram á laugardaginn :) Grillað verður bæði föstudags- og laugardagskvöld ()auk þess sem gera má ráð fyrir dúndur partýi þegar dimma tekur.

Á staðnum er líka tjaldstæði en líka er hægt að fá leyfi til að tjalda við hliðina á bústaðnum. Það væri gott að þau ykkar sem vilja gista í bústaðnum láti vita hér í athugasemdunum og þá hvort þið viljið vera bæði föstudags- og laugardagsnótt eða bara aðra.
 
Líklegur kostnaður við að gista í bústað báðar nætur verður í kringum 3000 kr. á mann með vsk. en minna fyrir að tjalda.

Sumarkveðjur,

Daði Freyr

Halfmoon party

31. maí 2008 klukkan 17:23
Sælt veri fólkið,

Þar sem vinnupartýið sem ég er að halda er búið að breytast í hálfgert bekkjarpartý ætlaði ég að láta ykkur vita að allir eru velkomnir svo ef ykkur langar að kíkja í kvöld þá endilega bjallið (695-1514).

Kveðja Daníel Auðuns

Innskráningar kubbur

Niðurtalning

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...